18.5.2007 | 17:02
Dýrin í skóginum
Úff, það er alveg magnað hvað það fjölgar hér í dýrahópnum. Fyrir eigum við 2 hunda, 3 ketti og síðan húsdýrin sjálf. Á síðustu dögum hefur bæst við hagamús og fugl (Þekki ekki tegundina).
Hún Ragheiður dóttir mín bjargaði nú fyrir skemmstu hagamús úr klóm eins kattanna okkar í hlöðunni. Músin hafði skaddast á auga en var ómeidd að öðru leiti (fyrir utan væntanlega sært stolt). Músinni var snarað inn í hús, síðan var útbúið búr með öllum græjum svo einmanna mús leiddist ekki, og þar situr hún öllum til ómldrar ánægju og yndisauka eða þannig.
Síðan gerðist það í dag að sonur minn Hafsteinn var að leika sér upp í bústað hjá afa sínum þegar fugl flýgur inn í bústaðinn. Í örvæntingarfullri tilraun fuglsins við að komast út, tókst ekki betur til en svo að ræfillinn flaug á stofugluggann (innan frá) og steinrotaðist. Það þarf engan snilling til að átta sig á því að fuglinn var handsamaður í snatri og Hafsteinn hentist í loftköstum með hann heim þar hans beið búr með prikum, vatnsdalli og páfagauksfóðri.
Nú bíð ég spenntur eftir því að Ísabella, sú yngsta muni draga ref, mink eða eitthvað álíka nett með sér heim. Þangað tilnæst, hafið það gott.
Um bloggið
Jón Hafsteinn Ragnarsson
Færsluflokkar
Tenglar
Annað
- Bændasamtökin
- Landsamband Kúabænda Góð síða fyrir bændur og annað áhugafólk um landbúnað
- Búnaðarsamband Suðurlands
- VG
Einstaklingar
Hér eru slóðir á heimasíður einstaklinga
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.